17.1.2010 | 12:39
Góð göngulest í gær
Göngulestin hélt af stað í mildu síðdegisveðri stundvíslega kl. 17 frá Menntaskólanum við Sund í gær. Um 10 manns tóku þátt í fyrstu lestinni. Rúnturinn reyndist taka ögn lengri tíma en ráðgert var en lestin verður auðvitað í þróun næstu laugardaga og mun laga sig að þátttakendum.
Hér er helmingur farþega, eða þeir sem á enduðu á upphafsstað en flestir nýttu sér þann kost lestarinnar að koma og fara á þeim stað er hentar hverjum og einum.
kv. S
15.1.2010 | 17:49
Mikið um að vera á laugardag í Laugardal
Vá það er bara mikið um að vera um helgina. Göngulestin svokallaða hefst á laugardag, klukkustundar göngutúr fyrir alla sem áhuga hafa. Lagt af stað frá Menntaskólanum við Sund kl. 17.00 og genginn hringur sem er nokkurnveginn umhverfis Laugardalinn. Þetta verður vikulegur viðburður svo fremi að fólk taki við sér og fylli lestina. Ekki er nauðsynlegt að byrja hringinn við Menntaskólann því það er hægt að stökkva í og úr lestinni hvar sem er á leiðinni. Kort af leiðinni birtist í Laugardalsblaðinu sem kom út fyrir stuttu.Á eftir þessum göngutúr er svo hægt a skella sér á þorrablót Þróttar og halda áfram fjörinu fram á nótt. íbúasamtök Laugardals eru samstarfsaðilar Þróttar um þetta þorrablót og samtökin hvetja meðlimi til að fjölmenna og borða saman og skemmta sér. Það er hægt að nýta sér hópafslátt og þá bent á að hafa samband á netfangið laugardalur@gmail.com fyrir 15.jan. Vonandi næst þá í stóran og góðan hóp.
Guttormi tókst ekki að koma göngulestarkortinu hér inn en ekki er allt glatað því hér er gönguáætlunin og ætti fólk að geta áttað sig á þessu:
Nr Staður- tillögur Staðsetning kl 1 MS-torgið Skeiðarvogur v/Gnoðarvog 17:00 2 Suðurlandsstígur við...Hestinn? Suðurlandsbraut v/Langholtsveg 17:05 3 Dórahorn? Langholtsvegur v/Skeiðarvog 17:10 4 Rauðatorgið Langholtsvegur v/Álfheima 17:15 5 Helgahorn? Langholtsvegur v/Holtaveg 17:18 6 Sunnutorg Langholtsvegur v/Laugarásveg 17:20 7 Farfuglablettur? Laugarásvegur / Sundlaugavegur/Dalbraut 17:30 8 Sundlaugatorg, Laugatorg, Skólatorg? Sundlaugavegur v/ Reykjaveg 17:35 9 Þróttur, KSÍ? Reykjavegur/Engjavegur 17:40 10 Jafnvægispunktur (yin yang)? Á mörkum Húsdýra-, Fjölskyldu- og Grasagarðs 17:45 11 Glæsibær, Túnið, Bletturinn? Engjavegur v/Gnoðarvog 17:50 12 Suðurlandsstígur? Stígur við Olís 17:55 MS-torgið Skeiðarvogur v/Gnoðarvog 18:00
Svo er það þorrablótið!
Bestu kveðjur
f.h. Guttorms
Sigríður
12.1.2010 | 16:42
Góðan daginn Guttormur
Gutti hefur fregnað að mánaðarlega hittist hópur áhugasamra íbúa um gott og mannvænlegt hverfi. Eitthvað er að koma útúr þessu og hefur nautið legið á hleri og hefur einhverjar spurnir af því að um helgina sé að fara af stað "göngulest". Hvað er nú það? Það ætlar Guttormur að komast á snoðir um og upplýsa hér fyrir helgina.
kv.
Sigríður
28.8.2009 | 00:01
Hinn árlegi útimarkaður í vændum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2009 | 23:31
Tré aprílmánaðar
Það mætti halda að við værum í áskrift því að aftur er tré mánaðarins í hverfinu. Tré aprílmánaðar er marþöll sem stendur í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal. Það er Skógræktarfélag Reykjavíkur sem velur þessi fallegu tré mánaðarlega.
Í maí hefur Skógræktarfélagið valið glæsilegt birki við Háteigsveg.
kv.
Sigríður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2009 | 17:57
Tré marsmánaðar
Í hverjum mánuði velur Skóræktarfélag Reykjavíkur tré mánaðarins. Í marsmánuði varð fyrir valinu rúmlega 18 metra há alaskaösp (Populus trichocarpa) í garði við Langholtsveg 158.

Sigríður
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 13:58
Aðalfundur Íbúasamtaka Laugardals í kvöld
Við minnum á Aðalfund Íbúasamtaka Laugardals 2008 í kvöld,
miðvikudaginn 5. nóvember kl. 19:30 í Laugabóli (félagsheimili Þróttar og Ármanns).
Dagskrá:
(1) Ávarp formanns
(2) Venjuleg aðalfundarstörf
(3) Yfirlit yfir störf áhugahópa
(4) Aðalerindi kvöldsins. Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður fjallar um Stefnu og stefnuleysi skipulagsyfirvalda á höfuðborgarsvæðinu.
Fundurinn verður haldinn í framhaldi af fjölskyldu- og frístundafundi Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis sem hefst kl. 17:30 og stendur til 19:30.
Aðalfundur íbúasamtakanna er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að fjölmenna!
Stjórn ÍL
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2008 | 11:55
Elliðaárdalur - hver gætir hans?
Elliðaárdalur er í næsta nágrenni við okkur Guttorm, einstök perla að hafa í miðri borg. Þangað leita Reykvíkingar til útivistar, leikja og uppsetningu leiksýninga svo fátt eitt sé nefnt. Dalurinn er mikilvæg tenging í stígakerfi borgarinnar um græn svæði. Það er í samræmi við annað starf Guttorms að vekja athygli á stofnun hópsins Verndum Elliðaárdal í tilefni af breytingu á aðal- og deiliskipulagi Stekkjarbakka og nágrennis sem nú er í kynningu. Það er alltaf jafn sorglegt hvernig skipulagsumræðan virðist þurfa að hefjast á því hvað fólk vill ekki fá á einhverjum stað. Það er kannski vegna þess að svæði sem ekki hefur verið skipulagt er í huga íbúa útivistarsvæði en í huga yfirvalda ófrágengið. Það getur vel farið saman að finna lóðir við hæfi fyrir starfsemi borgarinnar og að varðveita náttúruperlur. Krefst ef til vill meiri fyrirhyggju af hálfu allra framkvæmdaaðila og auðvitað er verðmiði á lóðum sem er búið að úthluta áður, sem ekki er á þeim lóðum sem borgin úthlutar í fyrsta sinn. Útivistarsvæði hafa mikið varðveislugildi og verðmiði verður seint settur á Elliðaárdalinn og aðlæg svæði.
Íbúar við Laugardal hafa verið ötulir undanfarin ár að hvetja stjórnvöld í borginni til að varðveita græn svæði og efla aðdráttarafl þeirra til útivistar. Okkur til ómældrar ánægju nýtist Laugardalur fyrir útimarkaði og tónleika til viðbótar við alla þá nærandi útivist og hreyfingu sem þangað má sækja daglega ókeypis. Vonandi heldur varðveisla grænna svæða áfram, enda er fullljóst að sambærilega lóð og Stekkjarbakkann má finna í næsta nágrenni, hugsanlega á Höfða- / Hálsasvæðunum svo eitthvað sé nefnt.
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2008 | 12:47
Vitjum Friðarsúlunnar - og berum boðskap hennar heim
Kveikt var á Friðarsúlunni í Viðey í kvöld kl. 20:00, en einungis fáir
gáfu sér tíma til að fylgjast með. Yoko Ono hannaði Friðarsúluna og
býður hún nú almenningi upp á ókeypis siglingar út í Viðey á
tímabilinu frá 9.-15. október kl. 20 alla dagana. Hundrað og fimmtíu
manna bátur mun leggja frá bryggju á Skarfabakka kl. 20 alla dagana.
Yoko hvetur landsmenn til að leiða hugann að friði á jörð og hleypa
birtu og yl Friðarsúlunnar inn í hjörtu sín.
Á ferð um hverfið okkar nýlega sáust tendruð hvít ljós í tré í garði
og báru með sér notalegt mótvægi við andstreymi og bölmóðstal í
vaxandi skammdegi. Hvítt ljós Friðarsúlunnar sést vel úr hverfinu
okkar og hefur sömu áhrif með tímabærum skilaboðum. Gefum okkur tíma
til að vitja Friðarsúlunnar og tendrum okkar eigin ljós með skilaboðum
um von og vinarþel.
Lilja Sigrún Jónsdóttir
20.9.2008 | 10:43
Tölur segja sínu máli.
Í ljósi umræðna um öryggi gangandi vegfarenda í Laugardal er rétt að endurbirta þessa færslu sem birtist á Guttormi í nóvember á sl. ári. Hér er færslan endurbirt óbreytt.
Kynferðisbrot voru jafnmörg framin í Laugardal og í miðborg Reykjavíkur árið 2006. Þar höfum við það!
Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins á síðu 8 í dag. Undirrituð tekur undir með lögreglustjóra segir að kanna þurfi þetta betur til að átta sig á hvernig bregðast skuli við. Kynferðisbrot eru alltaf alvörumál. Mér er sérstaklega umhugað um hina miklu umferð barna á svæðinu og vona svo sannarlega að lögregluyfirvöld vinni farsællega úr málinu hið skjótasta.
Meðfylgjandi tafla fréttarinnar yfir staðtölur er hér til hliðar og texti hennar hér að neðan:
-------------------------------------------------
Jafnmörg kynferðisbrot framin í Laugardal og miðborg Reykjavíkur:
21 kynferðisbrot framið í Laugardal
LÖGREGLUMÁL Framið var 21 kynferðisbrot í Laugardal á síðasta ári en það eru jafn mörg og framin voru í miðborg Reykjavíkur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um afbrot á höfuðborgarsvæðinu sem Rannveig Þóris dóttir og Benjamín Gíslason unnu fyrir lögregluna.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri sagðist ekki kunna skýringu á þessum mikla fjölda kynferðisbrota í Laugardal. „Þetta eru reyndar mikið til blygðunarsemisbrot og alls ekki allra alvarlegustu kynferðisbrotin sem þarna um ræðir. En það er engu að síður tilefni til að skoða þessar tölur með það að markmiði að átta okkur á því hvernig við eigum að bregðast við.“
Rannveig segir að þarna sé líklega um tilviljun að ræða sem gefi alls ekki tilefni til að draga ofmiklar ályktanir af. Til dæmis voru þessi brot einungis sex í Laugardal einu ári áður. Laugardalur kom ekki vel út í skýrslunni en 9,4 prósent allra brota á höfuðborgarsvæðinu voru framin þar. Það er fjórða hæsta hlutfallið á eftir miðborginni, Breiðholti og Kópavogi.
- jse
-------------------------------------------------
Guttormur
Nýjustu færslur
- Góð göngulest í gær
- Mikið um að vera á laugardag í Laugardal
- Góðan daginn Guttormur
- Hinn árlegi útimarkaður í vændum
- Tré aprílmánaðar
- Tré marsmánaðar
- Aðalfundur Íbúasamtaka Laugardals í kvöld
- Elliðaárdalur - hver gætir hans?
- Vitjum Friðarsúlunnar - og berum boðskap hennar heim
- Tölur segja sínu máli.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.3.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 49708
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
nytjagardar
-
olof
-
mortenl
-
torfusamtokin
-
varmarsamtokin
-
hlidar
-
arogsid
-
bjorkv
-
dofri
-
almal
-
doggpals
-
eyglohardar
-
gesturgudjonsson
-
vglilja
-
gummisteingrims
-
gbo
-
harring
-
heidistrand
-
hehau
-
ingabesta
-
ingibjorgelsa
-
kari-hardarson
-
margretsverris
-
mist
-
omarragnarsson
-
xyz
-
pjetur
-
rannthor
-
sigurdurkari
-
soley
-
vefritid
-
thordursteinngudmunds
-
gudni-is
-
sylviam
-
pollyanna
-
saethorhelgi
-
siggivalur
-
annakr
-
svatli
-
erna-h
-
ibb
-
haaleitinordur
-
hrannsa
Eldri færslur
- Janúar 2010
- Ágúst 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007







